Fimm stór félög að eltast við Semenyo - Man Utd í viðræðum um nítján ára miðjumann - Arsenal hefur áhuga á leikmanni AC Milan
banner
   lau 29. febrúar 2020 15:56
Aksentije Milisic
Ítalía: Lazio á toppinn - Andri á bekknum
Lazio 2 - 0 Bologna
1-0 Luis Alberto ('18 )
2-0 Joaquin Correa ('21 )

Lazio og Bologna mættust í fyrri leik dagsins í Serie A deildinni á Ítalíu. Fyrr í dag var greint frá því að fimm leikjum hafi verið frestað vegna kóróna veirunnar. Þar á meðal stórleik Juventus og Inter.

Lazio, sem er í bullandi toppbaráttu, komst yfir á 18. mínútu þegar Luis Alberto skoraði eftir undirbúning frá hinum sjóðheita Ciro Immobile. Immobile hefur verið frábær á þessu tímabili en hann hefur skorað 27 mörk og er hann 9 mörkum frá því að jafna met Gonzalo Higuain yfir flest mörk skoruð á einu tímabili í deildinni.

Einungis þremur mínútum síðar skoraði Joaquin Correa eftir sendingu frá Luis Alberto og staðan því 2-0 er flautað var til hálfleiks.

Gestirnir héldu að þeir hefðu minnkað muninn í byrjun seinni hálfleiks þegar Stefano Denswil skoraði. VAR hins vegar dæmdi markið af vegna brots í aðdragandanum. Á 68. mínutu skoraði Bologna aftur en aftur dæmdi VAR markið af. Takehiro Tomiyasu skoraði en eftir nánari athugun var hann dæmdur rangstæður.

Lokatölur því 2-0 sigur heimamanna. Andri Fannar Baldursson, sem spilaði sinn fyrsta leik í Serie A í síðustu umferð, var ónotaður varamaður í dag. Með sigrinum fer Lazio á toppinn í bili en Juventus á leik til góða. Bologna er í tíunda sætinu.
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 15 11 0 4 34 14 +20 33
2 Milan 15 9 5 1 24 13 +11 32
3 Napoli 15 10 1 4 22 13 +9 31
4 Roma 15 10 0 5 16 8 +8 30
5 Juventus 15 7 5 3 19 14 +5 26
6 Bologna 15 7 4 4 23 13 +10 25
7 Como 15 6 6 3 19 12 +7 24
8 Lazio 15 6 4 5 17 11 +6 22
9 Sassuolo 15 6 3 6 21 19 +2 21
10 Udinese 15 6 3 6 16 22 -6 21
11 Cremonese 15 5 5 5 18 18 0 20
12 Atalanta 15 4 7 4 19 18 +1 19
13 Torino 15 4 5 6 15 26 -11 17
14 Lecce 15 4 4 7 11 19 -8 16
15 Cagliari 15 3 5 7 15 21 -6 14
16 Genoa 15 3 5 7 16 23 -7 14
17 Parma 15 3 5 7 10 18 -8 14
18 Verona 15 2 6 7 13 22 -9 12
19 Pisa 15 1 7 7 10 20 -10 10
20 Fiorentina 15 0 6 9 12 26 -14 6
Athugasemdir
banner
banner