Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 29. febrúar 2020 15:45
Aksentije Milisic
Setien um Messi: Eins og þrjár drottningar í skák
Drottning?
Drottning?
Mynd: Getty Images
Quique Setien, þjálfari Barcelona, hefur hrósað argentínska snillingnum Lionel Messi, í hástert fyrir El Clasico. Hann segir það að hafa Messi sé eins og að hafa þrjár drottningar í skák.

Barcelona mætir Real Madrid á Santiago Bernabeu vellinum í Madríd á morgun. Leikurinn er gífurlega mikilvægur í toppbaráttunni.

„Messi er eins og að eiga þrjár drottningar í skák, De Jong er biskupinn og Jordi Alba er hrókurinn, sem stjórnar öllum dálknum."

Áhugaverð samlíking hjá Setien en flautað verður til leiks klukkan 20:00 í El Clasico á morgun og er leikurinn sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 sport.
Athugasemdir
banner
banner