Fotbolti.net
27.09.26 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Teitur er algjör goðsögn í eistneskum fótbolta"

Teitur Þórðarson.

Teitur Þórðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Ísland og Eistland gerðu 1-1 jafntefli á Laugardalsvelli í gær. Eistar eru ekki mjög hátt skrifaðir í fótboltaheiminum, en það er einn Íslendingur sem hefur skilið eftir sig mjög stór spor í eistneskum fótbolta.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 26. september á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Þú getur skráð þig í áskrift með því að smella hérna.
Teitur Þórðarson stýrði eistneska landsliðinu á árunum 1996 til 1999 - var einnig þjálfari Flora Tallinn á sama tíma - og á þeim tíma varð hann hluti af uppbyggingu landsliðsins eftir að Eistland endurheimti sjálfstæði sitt.

Í Eistlandi er hann enn í miklum metum.

„Ég veit ekki hvernig Teitur er metinn á Íslandi, en Teitur er algjör goðsögn í eistneskum fótbolta,“ segir Ott Järvela, eistneskur íþróttafréttamaður við Fótbolta.net.

Það sem stendur þó upp úr hjá Järvela er ekki bara árangurinn sem Teitur náði með liðinu. Hann telur að framlag hans hafi fyrst og fremst falist í því að kenna Eistlendingum ákveðna hluti sem höfðu vantað eftir áratugi þar sem fótboltinn hafði verið í skugga sovéska kerfisins.

„Hann kenndi eistneskum fótbolta grunnatriði í fagmennsku í fótbolta. Það var nauðsynlegt vegna þess að fótboltinn hafði verið lagður niður í Sovétríkjunum eins og ég nefndi. Hann náði líka góðum árangri, en hans mikilvægasta framlag var kennslan.“

Af hverju er Eistland ekki betra í fótbolta?
TENGT EFNI

Af hverju er Eistland ekki betra í fótbolta?


Víðir Sig: Söguleg tengsl milli Íslands og Eistlands
TENGT EFNI

Víðir Sig: Söguleg tengsl milli Íslands og Eistlands

„Teitur er algjör goðsögn í eistneskum fótbolta"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.