mán 29. mars 2021 20:20
Victor Pálsson
Muller opinn fyrir því að fara í sumar
Mynd: Getty Images
Thomas Muller, leikmaður Bayern Munchen, er opinn fyrir því að yfirgefa félagið ef hann telur að það sé það rétta í stöðunni.

Muller hefur spilað með Bayern allan sinn feril og hefur reynst mikilvægur í bæði deild og Meistaradeild.

Það er ekki útilokað að Muller spili annars staðar áður en hann ákveður að leggja skóna á hilluna. Þjóðverjinn hefur leikið yfir 500 leiki fyrir Bayern og er 31 árs gamall í dag.

„Ég er ekki háður þessu félagi en samband okkar er sérstakt," sagði Muller í samtali við the Times.

„Ég elskaði Bayern áður en ég byrjaði að spila fyrir þá en ef það kemur upp staða þar sem þú þarft að velja að spila fyrir annað félag þá er engin skömm sem fylgir því né vandamál."

„Svipað eins og gerðist með Thiago Alcantara [sem fór til Liverpool].
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner