AS Roma ætlar ekki að festa kaup á spænska kantmanninum Bryan Zaragoza sem leikur hjá félaginu á lánssamningi frá þýska stórveldinu FC Bayern.
Zaragoza er 24 ára gamall og er ennþá með þrjú ár eftir af samningi sínum við Bayern eftir að Þjóðverjarnir keyptu hann í sínar raðir fyrir tveimur og hálfu ári síðan.
Bæjarar borguðu tæpar 20 milljónir evra til að kaupa Zaragoza úr röðum Granada á Spáni þar sem hann hafði sýnt frábæra takta, en hann fann aldrei taktinn í Þýskalandi. Hann kom við sögu í sjö leikjum með Bayern á seinni hluta tímabils 2023-24 en þótti hvergi nærri því að vera nægilega góður fyrir liðið.
Zaragoza var því lánaður til Osasuna tímabilið 2024-25 og svo til Celta Vigo síðasta haust. Hann gerði fína hluti í Vigo sem vakti athygli Rómverja og tókst Ítölunum að semja við Bayern og Celta um að fá kantmanninn yfir til sín í janúarglugganum.
Roma borgaði tvær milljónir til að fá Zaragoza á láni út tímabilið með 13,5 milljón evra kaupskyldu sem myndi virkjast ef Roma næði evrópusæti og Zaragoza myndi spila helming leikja liðsins.
Rómverjar áttuðu sig fljótt á því að Zaragoza passaði ekki nógu vel inn í byrjunarliðið og spilaði hann sex leiki áður en Gian Piero Gasperini þjálfari tók ákvörðun um að Spánverjinn smávaxni væri ekki nægilega góður.
Rómverjar þurfa að greiða hálfa milljón evra í sekt fyrir að festa ekki kaup á Zaragoza.
Roma borgar því í heildina 2,5 milljónir fyrir misheppnaða lánsdvöl Zaragoza en raunverulegu sigurvegarar viðskiptanna eru Spánverjarnir í Celta Vigo. Þeir fengu 3 milljónir evra í sinn hlut fyrir að hleypa Zaragoza til Rómar þrátt fyrir að hann ætti ennþá hálft ár eftir af lánssamningnum í Vigo.
Zaragoza var lykilmaður í liði Granada sem vann næstefstu deild á Spáni 2023 og er með þrjá landsleiki að baki.
02.02.2026 17:35
Zaragoza kominn til Roma (Staðfest)




