Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   mið 29. apríl 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Reyna að lækka kaupverðið fyrir Nico González
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Fabrizio Romano greinir frá því að spænska stórveldið Atlético Madrid ætli ekki að virkja kaupákvæði sem er í lánssamningi Nicolás González.

González er 28 ára kantmaður á láni hjá Atlético frá Juventus. Hann hefur komið við sögu í 37 leikjum og skorað 5 mörk á tímabilinu en Diego Simeone er ánægður með framlag leikmannsins sem er mikill dugnaðarforkur.

Hann er að glíma við meiðsli og verður frá keppni næstu þrjár vikur sem þýðir að hann mun ekki uppfylla þann leikjakvóta sem þarf til að Atlético neyðist til að kaupa hann.

Atlético borgaði um 1,5 milljón evra til að fá González lánaðan síðasta haust með 32 milljóna árangurstengdri kaupskyldu. Hún virkjast ef Gonzaléz spilar 45 mínútur eða meira í 60% leikja liðsins í efstu deild spænska boltans, La Liga.

Romano segir að Atleti hafi áhuga á kantmanninum en ætli ekki að nýta sér kaupákvæðið. Spánverjarnir stefna á að fara í viðræður við Juventus í tilraun til að lækka kaupverðið niður í 20 til 25 milljónir.

González, sem spilaði áður fyrir Stuttgart og Fiorentina, er með 50 landsleiki að baki fyrir Argentínu.

   01.09.2025 16:25
Gekk til liðs við Juventus í sumar en er farinn til Atlético Madrid (Staðfest)


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 33 28 1 4 87 30 +57 85
2 Real Madrid 33 23 5 5 68 31 +37 74
3 Villarreal 33 20 5 8 59 38 +21 65
4 Atletico Madrid 33 18 6 9 56 37 +19 60
5 Betis 33 12 14 7 49 41 +8 50
6 Celta 33 11 11 11 45 43 +2 44
7 Getafe 33 13 5 15 28 34 -6 44
8 Real Sociedad 33 11 10 12 52 52 0 43
9 Osasuna 33 11 9 13 39 40 -1 42
10 Athletic 33 12 5 16 36 48 -12 41
11 Vallecano 33 9 12 12 33 41 -8 39
12 Valencia 33 10 9 14 37 48 -11 39
13 Espanyol 33 10 9 14 37 49 -12 39
14 Elche 33 9 11 13 44 50 -6 38
15 Girona 33 9 11 13 36 50 -14 38
16 Alaves 33 9 9 15 38 49 -11 36
17 Mallorca 33 9 8 16 41 51 -10 35
18 Sevilla 33 9 7 17 40 55 -15 34
19 Levante 33 8 9 16 37 50 -13 33
20 Oviedo 33 6 10 17 26 51 -25 28
Slapp
banner
banner