Freysi: Þetta er stórt og mér þykir mjög vænt um þetta
Auglýsing

Freysi kampakátur.

Mynd: Per Kjærbye

Freyr var að klára sitt fyrsta tímabil með Lyngby.

Mynd: Lyngby

Freysi kampakátur.

Mynd: Per Kjærbye
„Mér líður alveg rosalega vel. Ég hef það mjög gott," sagði Freyr Alexandersson, þjálfari Lyngby, eftir 1-0 sigur á Fredericia í dönsku B-deildinni í dag en liðið tryggði sig upp í deild þeirra bestu síðustu helgi.
„Ég finn það líka núna að það er geggjað að taka viðtal á íslensku," sagði Freyr léttur.

Hann var að klára sitt fyrsta tímabil í Danmörku og það fór allt eftir plani; Lyngby fór beinustu leið upp í dönsku úrvalsdeildina.
„Það er búið að ganga rosalega mikið á. Ég veit ekki hvort ég eigi að fara eitthvað mikið nánar út í það; innan vallar og utan, það voru vandamál sem við þurftum að takast á við. Það þétti okkur rosalega saman. Ég sá nýjar hliðar á fótboltanum í kjölfarið þar sem menn opnuðu sig á annan hátt. Það er mikið bræðralag í liðinu."
„Þegar við byrjuðum þá missti ég tólf leikmenn og við fengum fáa inn. Við þurftum að byggja frá grunni. Mér fannst það fínt. Væntingarnar voru misjafnar... ég held að við höfum unnið fyrstu leikina og það var rosalega sterkt. Það hvernig við tækluðum brotthvarf þessara sterku leikmanna, aðrir fá tækifærið og nýta tækifærið. Það er þetta bræðralag sem ég er að tala um. Ég er líka stoltur af sjálfum mér að hafa staðist pressuna og náð að aðlagast vel," sagði Freyr.
Hann var spurður hvort þetta væri það stærsta á ferlinum. „Ég veit það ekki. Þetta er stórt og mér þykir mjög vænt um þetta. En öll þessi augnablik með landsliðunum, karla- og kvennalandsliðinu, eru risastór. Svo þegar við fórum upp með Leikni í fyrsta skipti, það var rosalega sérstakt og eitthvað sem ég mun aldrei gleyma. Ég veit það ekki, ég er allavega mjög stoltur af þessu."
Lyngby endaði í öðru sæti þar sem Horsens gerði jafntefli í dag. „Við vorum að horfa á þeirra úrslit. Þetta er alltaf eins, ég sagði fyrir leik að við ætluðum að skora flest mörk í deildinni, fá á okkur fæst og enda númer eitt. Ég var að reyna að hamra þetta í þá... Horsens eru frábærir, ég vil nota tækifærið og hrósa Aroni Sigurðarsyni sem hefur verið stórkostlegur með Horsens."
Hægt er að sjá allt viðtalið hér að ofan þar sem Freyr ræðir nánar um tímabilið