Fotbolti.net
04.07.26 - 16:27
Ívar Björgvinsson

Badu: Jón Þór er núna í Stjörnunni

Auglýsing
Badu: Jón Þór er núna í Stjörnunni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

Vestri fór í heimsókn til Grindavíkur og spilaði þar heldur rólegan leik sem lauk með markalausu jafntefli. Fótbolti.net var á staðnum og heyrði í Badu, þjálfara Vestra, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Grindavík 0 - 0 Vestri

„Tilfinningin er eins og við höfum misst tvö stig hér í dag sem er ekki góð tilfinning. Mér fannst við sterkari aðilinn, við vissum að Grindavík er gott lið, gott varnarlið og við vissum að það yrði erfitt að búa til færi. Mér fannst við amt gera það nógu vel til að skora eitt mark eða meira í dag.''

Vestri fær tvö afbragðsfæri undir lok fyrri hálfleiks en náðu ekki að nýta sér þau sem reyndist dýrt í lok leiks. 

„Það er mjög dýrt fyrir okkur að hafa ekki náð að nýta færin sem við vorum að búa til, það er mjög svekkjandi.''

Næst bíður verkefni gegn Qarabag í forkeppni Evrópudeildarinnar sem verður ansi erfitt.

„Það er bara spennandi, strákarnir eru mjög spenntir að spila svona stóran leik og við förum í leikinn með mikla spennu.''

Vestri á enn eftir að redda þjálfara með UEFA Pro gráðu fyrir Evrópuleikina?

„Nei það er ekki búið, Jón Þór er núna í Stjörnunni og ég veit ekki hvað við eigum að gera í því.''

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.