Fotbolti.net
04.07.26 - 16:10
Brynjar Ingi Erluson

Lengjudeildin: Færin fóru forgörðum í Grindavík

Vestri náði ekki að brjóta vörn Grindavíkur á bak aftur

Vestri náði ekki að brjóta vörn Grindavíkur á bak aftur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Grindavík 0 - 0 Vestri
Lestu um leikinn
Grindavík og Vestri gerðu markalaust jafntefli í Lengjudeild karla á Grindavíkurvelli í dag.

Gestirnir í Vestra voru með völdin í fyrri hálfleik og sköpuðu sér nokkur góð færi.

Damir Muminovic átti frábæran leik í vörn Grindavíkur og var duglegur að hreinsa frá eða koma sér fyrir skot gestanna.

Undir lok fyrri hálfleiks fóru Vestramenn að skapa sér hættulegri færi. Þórður Gunnar Hafþórsson komst einn á móti Hjörvari Daða Arnarssyni, sem gerði vel í að verja.

Emmanuel Agyeman Duah fékk enn betra færi þegar Breki Þór Hermannsson kom boltanum á hann, en Duah setti boltann á einhvern ótrúlegan hátt framhjá markinu.

Staðan var markalaus í hálfleik. Grindavík ógnaði aðeins í upphafi síðari hálfleiks, en Vestri fékk síðan nokkur færi til að stela stigunum þremur.

Breki Þór átti skot sem Hjörvar varði og frákastið fór til Konstantin Cheshmedjiev, en honum brást einnig bogalistin.

Grindavík reyndi líka að sækja sigurinn undir lokin. Marvin Darri Steinarsson varði fyrst frá Rafael Victor og síðan annað skot frá varamanninum Lárusi Orra Ólafssyni.

Hvorugu liðinu tókst þó að finna netið og leiknum lauk með markalausu jafntefli. Vestri er í 4. sæti með 21 stig en Grindavík er í 10. sæti með 10 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding14+2231
2Þróttur R.15+1730
3Fylkir14+1230
4HK15+1028
5Grótta14+122
6Vestri15-521
7Njarðvík14+120
8Leiknir R.15-419
9Grindavík14-314
10ÍR15-1113
11Völsungur14-178
12Ægir15-238
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.