Fotbolti.net
04.07.26 - 15:49
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarlið Kanada og Marokkó: Stjarnan áfram á bekknum

Kanada mætir Marokkó

Kanada mætir Marokkó

Canon

Mynd: EPA

Kanada og Marokkó mætast í fyrsta leik 16-liða úrslita heimsmeistaramótsins klukkan 17:00 á NRG-leikvanginum ú Hoston í dag.
Kanadamenn unnu 1-0 sigur á Suður-Afríku í 32-liða úrslitum á meðan Marokkó henti Hollandi úr leik eftir vítakeppni.

Jesse Marsch gerir þrjár breytingar á liði Kanada. Luc De Fougerolles kemur í vörnina í stað Derek Cornelius og þá koma þeir Niko Sigur og Ali Ahmed inn fyrir þá Nathan Saliba og Liam Millar.

Alphonso Davies, stærsta stjarna Kanada, er ekki enn klár í að byrja, en hann er á bekknum.

Ein breyting er á gerð á liði Marokkó. Redouane Halhal kemur í vörnina í stað Chadi Riad.

Kanada: Crepeau; Johnston, Bombito, De Fougerolles, Laryea; Buchanan, Sigur, Eustaquio, Ahmed; David, Oluwaseyi.

Marokkó: Bounou; Hakimi, Diop, Halhal, Mazraoui; El Aynaoui, Bouaddi; Diaz, Ounahi, El Khannouss; Saibari.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.