Dougie Critchley, fréttamaður Sky Sports, setur stórt spurningamerki við það að Napoli sé að ráða Max Allegri sem nýjan stjóra sinn.
Antonio Conte yfirgaf Napoli eftir tímabilið. Hann gerði Napoli að ítölskum meistara 2024/25 tímabilið en liðið endaði í öðru sæti á tímabilinu sem var að klárast.
Antonio Conte yfirgaf Napoli eftir tímabilið. Hann gerði Napoli að ítölskum meistara 2024/25 tímabilið en liðið endaði í öðru sæti á tímabilinu sem var að klárast.
Allegri stýrði Milan á nýliðnu tímabili en árangurinn þar voru mikil vonbrigði. Liðið missti af Meistaradeildarsæti eftir tap gegn Cagliari í lokaumferðinni.
Aurelio De Laurentiis, forseti Napoli, er hins vegar mjög hrifinn af honum þar sem Allegri hefur unnið deildartitla með Milan og Juventus á ferlinum. Critchley setur hins vegar stórt spurningamerki við þessa ráðningu ef hún verður að veruleika.
„Kevin De Bruyne, Rasmus Höjlund og Scott McTominay hljóta að vera að velta fyrir sér hvað þeir eiga að halda um tilkynninguna um að Max Allegri sé að taka Napoli," skrifar Critchley og heldur áfram:
„Það er nýbúið að reka hann frá Milan eftir slæman endi á tímabilinu og þá er hann ráðinn til Napoli aðeins þremur dögum síðar. Allegri á mikla virðingu skilið fyrir allt sem hann hefur afrekað, en þetta er ekki árið 2017."
„Þetta finnst mér mjög lítið spennandi."

