Ítölsku risarnir keppast um markvörð Tottenham

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Napoli er nýjasta félagið til að blanda sér í baráttuna um Guglielmo Vicario, markvörð Tottenham Hotspur, samkvæmt heimildum Sky á Ítalíu.
Juventus hefur verið að skoða þann möguleika að fá Vicario í sumarglugganum, en félagið leitar að markverði eftir að Liverpool neitaði að selja Alisson.
Emi Martínez hefur til þessa verið efstur á óskalista Juventus, en viðræður hafa gengið hægt og því er Vicario kominn inn í myndina.
Vicario gæti kostað á bilinu 20 til 30 milljónir evra, en Tottenham er sagt opið fyrir því að hlusta á tilboð í ítalska markvörðinn.
Juventus er þó ekki eina félagið sem ætlar að reyna við Vicario, því Napoli hefur einnig mikinn áhuga. Þá hefur Inter einnig verið orðað við hann síðustu mánuði.
Áhugi Napoli veltur hins vegar á því hvort Alex Meret eða Vanja Milinkovic-Savic verði seldir frá félaginu.