Fotbolti.net
19.06.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

HM um helgina - Alvaran að færast í mótið

John McGinn og félagar í Skotland geta tryggt farseðilinn í 32-liða úrslit

John McGinn og félagar í Skotland geta tryggt farseðilinn í 32-liða úrslit

Canon

Mynd: EPA

Það er komin alvara í heimsmeistaramótið og margar þjóðir sem geta svo gott sem tryggt sæti sitt í 32-liða úrslit mótsins.
Í kvöld mætast Skotland og Marokkó í C-riðli. Skotar unnu Haítí í fyrstu umferðinni á meðan Marokkó gerði 1-1 jafntefli við Brasilíu. Sigur myndi fleyta Skotum áfram.

Ástralía og Bandaríkin eiga sömuleiðis möguleika á að komast áfram. Ástralía vann óvæntan 2-0 sigur á Tyrklandi í fyrstu umferðinni á meðan Bandaríkin vann þægilegan 4-1 sigur á Paragvæ.

Aðfaranótt laugardags mætast Brasilía og Haítí í C-riðli og þá spilar Tyrkland við Paragvæ.

Í F-riðli mætast Holland og Svíþjóð klukkan 17:00 en bæði lið unnu leiki sína í fyrstu umferðinni. Þýskaland, sem slátraði Curacao 7-1 í fyrsta leik spilar við Fílabeinsströndina sem marði 1-0 sigur á Ekvador.

Um nóttina fer fram leikur Ekvador og Curacao, áður en Túnis spilar við Japan.

Á sunnudag eru nokkrir spennandi leikir. Evrópumeistarar Spánverja gerðu óvænt markalaust jafntefli við Grænhöfðaeyjar í fyrstu umferðinni en þeir mæta Sádi-Arabíu klukkan 16:00.

Grænhöfðaeyjar mæta Úrúgvæ í sama riðli klukkan 22:00. Belgía og Íran eigast síðan við klukkan 19:00 í G-riðli áður en Nýja-Sjáland og Egyptaland eigast við klukkan 01:00, aðfaranótt mánudags.

Leikir helgarinnar:

föstudagur 19. júní

HM C-riðill
22:00 Skotland - Marokkó

HM D-riðill
19:00 Bandaríkin - Ástralía

laugardagur 20. júní

HM C-riðill
00:30 Brasilía - Haítí

HM D-riðill
03:00 Tyrkland - Paragvæ

HM E-riðill
20:00 Þýskaland - Fílabeinsströndin

HM F-riðill
17:00 Holland - Svíþjóð

sunnudagur 21. júní

E-riðill
00:00 Ekvador - Curacao

F-riðill
04:00 Túnis - Japan

G-riðill
19:00 Belgía - Íran

H-riðill
16:00 Spánn - Sádí Arabía
22:00 Úrúgvæ - Grænhöfðaeyjar

mánudagur 22. júní

G-riðill
01:00 Nýja-Sjáland - Egyptaland
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Spánverjar eru í leit að fyrsta sigrinum

Spánverjar eru í leit að fyrsta sigrinum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.