HM: Skelfileg meiðsli Kone skyggðu á flugeldasýningu Kanada - David með þrennu

Cyle Larin og félagar í kanadíska landsliðinu fagna

Mynd: EPA

Jonathan David skoraði tvö

Kanada 6 - 0 Katar
1-0 Cyle Larin ('16 )
2-0 Jonathan David ('29 )
3-0 Jonathan David ('45 )
4-0 Nathan-Dylan Saliba ('64 )
5-0 Mohamed Al-Mannai ('75 , sjálfsmark)
6-0 Jonathan David ('90 )
Rautt spjald: ,Homam Ahmed Elamin, Katar ('33)Assim Madibo, Katar ('53)

TENGT EFNI
Hræðilegt fótbrot og annað rautt í Vancouver - „Mig langar til að gráta“
Gestgjafar Kanada unnu ótrúlegan 6-0 stórsigur á Katar í annarri umferð B-riðils heimsmeistaramótsins í Vancouver í Kanada í kvöld, en skelfileg meiðsli Ismael Kone skyggðu á annars stórkostlega frammistöðu heimamanna.
Kanadamenn ætluðu sér stóra hluti og vissu að sigur væri lífsnauðsynlegur upp á framhaldið.
Þeir sýndu ótrúlega ákefð og áræðni í leiknum. Cyle Larin skoraði annað mark sitt á mótinu á 16. mínútu. Alistair Johnston gerði frábærlega hægra megin og kom boltanum á Jonathan David sem átti hörkuskot sem Mahmoud Abunada náði ekki að halda. Larin mætti í frákastið og skoraði.
Jonathan David opnaði markareikning sinn þrettán mínútum síðar með góðu skoti eftir sendingu Tajon Buchanan.
Vont versnaði fyrir Katar þegar Homam Ahmed Elamin fékk rauða spjaldið fyrir að taka Buchanan niður. Upphaflega var dæmd vítaspyrna, en það var tekið til baka eftir skoðun í VAR þar sem brotið hófst fyrir utan teig.
Sóknarþungi Kanada hélt áfram og Katarar björguðu tvisvar á línu áður en David skoraði annað mark sitt undir lok uppbótartímans.
Abunada varði frá Larin en David var fyrstur að átta sig og setti boltann í netið.
Kanada var á flugi og miðað við frammistöðuna stefndi í stærsta sigur mótsins.
Snemma í síðari hálfleik skyggðu hræðileg meiðsli Ismael Kone á mögulegan fyrsta sigur Kanada á heimsmeistaramóti. Assim Madibo fór aftan í Kone, sem lá eftir. Í sjónvarpsútsendingu sást að Kone hafði augljóslega fótbrotnað og leikmenn hópuðust að honum og mynduðu skjól á meðan hlúð var að honum.
Madibo var sjálfur í áfalli enda virtist um algjört óviljaverk að ræða, en hann fékk að líta rauða spjaldið og Katarar voru orðnir tveimur mönnum færri.
Það tók um sex mínútur að hlúa að Kone áður en hann var borinn af velli. Stuttu eftir að leikurinn fór aftur af stað skoraði Nathan-Dylan Saliba fjórða markið úr aukaspyrnu, hægra megin við vegginn og í stöngina og inn.
Saliba fagnaði markinu og tileinkaði Kone það með því að halda treyju hans á lofti.
Fimmtán mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma kom fimmta markið þegar Jacob Shaffelburg tók klippu úr teignum sem Mohamed Al-Mannai þrumaði í eigið net. Rosalega klaufalegt hjá Al-Mannai, sem hitti boltann mjög illa.
Abunada, markvörður Katar, kvartaði yfir meiðslum eftir aukaspyrnumark Saliba og aftur þegar um átta mínútur voru eftir. Erfitt er að segja til um hvort hann hafi verið meiddur, en það leit út fyrir að hann væri að reyna að drepa flæði leiksins og koma í veg fyrir að Kanada niðurlægði Katar enn frekar.
Leikurinn róaðist aðeins næstu mínútur áður en David fullkomnaði þrennuna í upphafi uppbótartímans og jafnaði þar með stærsta sigur mótsins til þessa, en Þýskaland vann Curacao 7-1 í fyrstu umferðinni. Þetta var jafnframt fyrsti sigur Kanada á heimsmeistaramóti, en þetta er í þriðja sinn sem þjóðin tekur þátt.
Kanada er komið með fjögur stig, líkt og Sviss, en liðin mætast einmitt í lokaumferð riðilsins. Katar er með eitt stig, líkt og Bosnía.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!