Fotbolti.net
18.06.26 - 21:02
Brynjar Ingi Erluson

HM: Ótrúlegar lokamínútur í Los Angeles - Varamennirnir gerðu gæfumuninn

Johan Manzambi kom inn af bekknum og skoraði tvö

Johan Manzambi kom inn af bekknum og skoraði tvö

Canon

Mynd: EPA

Sviss 4 - 1 Bosnía og Hersegóvína
1-0 Johan Manzambi ('74 )
2-0 Ruben Vargas ('84 )
3-0 Johan Manzambi ('90 )
3-1 Ermin Mahmic ('90 )
4-1 Granit Xhaka ('90, víti )
Rautt spjald: Tarik Muharemovic, Bosnía og Hersegóvína ('80)
Sviss vann dýrmætan 4-1 sigur á Bosníu og Hersegóvínu í annarri umferð B-riðils heimsmeistaramótsins á SoFi-leikvanginum í Inglewood í Kaliforníu í kvöld. Öll mörkin komu á lokakaflanum og Bosnía fékk að líta rauða spjaldið.

Svisslendingar byrjuðu ágætlega. Dan Ndoye kom sér í færi eftir laglega sendingu Granit Xhaka á 10. mínútu en setti boltann í hliðarnetið.

Xhaka hélt áfram að skapa og Bosníumenn voru aðallega í því að verjast.

Staðan var markalaus í hálfleik. Bosnía átti nokkra góða kafla en náði ekki almennilega að vinna sig inn í leikinn.

Á 56. mínútu var Ndoye nálægt því að skora mark mótsins til þessa þegar hann reyndi bakfallsspyrnu, en Nikola Vasilj var vandanum vaxinn í markinu.

Johan Manzambi, tvítugur miðjumaður Freiburg, kom inn á sem varamaður á 71. mínútu og þremur mínútum síðar kom hann Sviss yfir. Fyrirgjöf kom frá vinstri, boltinn var skallaður út í teiginn á Manzambi sem skoraði með viðstöðulausu skoti í hægra hornið.

Sex mínútum síðar fékk Tarik Muharemovic, varnarmaður Bosníu, rauða spjaldið. Manzambi sendi boltann í gegn á Breel Embolo sem var tæklaður af Muharemovic, og dómarinn vísaði varnarmanninum af velli.

Sviss bætti við tveimur mörkum eftir spjaldið. Ruben Vargas, sem kom einnig inn á sem varamaður, skoraði með laglegri afgreiðslu í hægra hornið eftir sendingu frá Embolo og Manzambi gerði svo sitt annað mark.

Xhaka sendi Vargas inn vinstra megin, hann kom boltanum inn á Manzambi og staðan orðin 3-0.

Bosníumenn skoruðu sárabótarmark á lokamínútunum þegar hornspyrna var hreinsuð út í teiginn og þar mætti Ermin Mahmic á ferðinni og hamraði boltanum í netið. Frábært mark hjá Mahmic, sem hafði komið inn á sem varamaður nokkrum mínútum áður.

Veislunni var þó ekki lokið. Brotið var á Djibril Sow í teignum og Xhaka fór á punktinn til að kóróna frábæra frammistöðu sína í leiknum.

Lokatölur á SoFi-leikvanginum urðu 4-1, Sviss í vil. Sviss er komið í efsta sæti B-riðils með fjögur stig en Bosnía er í 3. sæti með eitt stig.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Granit Xhaka átti frábæran leik með Sviss

Granit Xhaka átti frábæran leik með Sviss

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.