Barcelona og Liverpool á eftir Van de Ven

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Barcelona og Liverpool vilja fá hollenska varnarmanninn Micky van de Ven frá Tottenham.
Hollenski blaðamaðurinn Mike Verweij, sem starfar hjá De Telegraaf, segir að félögin hafi sett sig í samband við föruneyti Van de Ven.
Van de Ven hefur átt í samningaviðræðum við Tottenham síðustu mánuði en þær hafa ekki gengið vel. Viðræðunum hefur því verið frestað fram yfir sumar. Það opnar möguleikann fyrir Barcelona og Liverpool að reyna að sannfæra Tottenham um að selja.
Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, vill alls ekki missa Van de Ven og er með áætlanir um að láta hann byrja við hlið Jan Paul van Hecke, sem var keyptur frá Brighton í dag.
Það er hins vegar óráðið hvort Tottenham hafi nokkurn áhuga á að selja hann.
Van de Ven á enn þrjú ár eftir af samningi sínum og því er ekki mikil pressa á Tottenham að selja en hann gekk í raðir félagsins frá Wolfsburg árið 2023.
Þessi 25 ára varnarmaður færi þó ekki ódýrt og talið er að hann gæti kostað allt að 100 milljónir punda sem yrði metfé fyrir varnarmann.