Byrjunarlið Kanada og Katar: Bombito og Davies ekki klárir til að byrja

Cyle Larin fær traustið eftir að hafa bjargað stigi fyrir Kanada í síðustu umferð

Mynd: EPA

Gestgjafar Kanada mæta Katar í annarri umferð í B-riðli heimsmeistaramótsins klukkan 22:00 á BC Place-leikvanginum í Vancouver í Kanada í kvöld.

TENGT EFNI
HM: Ótrúlegar lokamínútur í Los Angeles - Varamennirnir gerðu gæfumuninn
Heimamenn í Kanada höfðu vonast til þess að Moise Bombito og Alphonso Davies yrðu klárir í slaginn.
Góðu fréttirnar eru þær að þeir eru báðir á bekknum, en ekki tilbúnir til að byrja leikinn.
Cyle Larin, sem skoraði jöfnunarmark Kanada í 1-1 jafnteflinu gegn Bosníu í fyrstu umferðinni, kemur inn í byrjunarliðið. Katar gerði á meðan 1-1 jafntefli við Sviss í sínum fyrsta leik.
Þessi leikur er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið, en Sviss er á toppi riðilsins eftir 4-1 sigur á Bosníu fyrr í kvöld.
Leikurinn er í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net og í beinni útsendingu á RÚV2.
Kanada: Crepeau; Johnston, De Fougerolles, Cornelius, Laryea; Buchanan, Eustaquio, Kone, Ahmed; Larin, David.
Katar: Abunada; Aloui, Miguel, Khoukhi, Ahmed; Madibo, Laye, Gaber; Junior, Abdurisag, Afif.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!