Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hver af þessum var versti stjóri tímabilsins?
Rúben Amorim.
Rúben Amorim.
Mynd: EPA
Liam Rosenior.
Liam Rosenior.
Mynd: EPA
Í hlaðvarpsþættinum Enski boltinn í vikunni voru ýmsar viðurkenningar veittar fyrir tímabilið í ensku úrvalsdeildinni.

Ein af þessum viðurkenningum var versti stjóri tímabilsins en fjórir komu til greina í þeim flokki:

Rúben Amorim (Manchester United)
Liam Rosenior (Chelsea)
Thomas Frank (Tottenham)
Ange Postecoglou (Nottingham Forest)

Allir þessir stjórar eru án starfs í dag, og það skiljanlega eftir tímabilið sem þeir áttu. Stóra spurningin fyrir þá er hvernig mun ganga að finna starf í framhaldinu því það verður væntanlega ekki auðvelt.

Amorim gerði vonda hluti með Manchester United og var alls ekki viljugur að breyta úr þriggja hafsenta kerfi sínu. Það er spurning hvar United hefði endað ef Michael Carrick hefði stýrt liðinu allt tímabilið.

Rosenior stýrði Chelsea í rúma fjóra mánuði en hann sagði ýmsa kjánalega hluti og var mikið grín gert að honum. Hann var aldrei tilbúinn í þetta starf.

Thomas Frank gerði frábæra hluti með Brentford en fann sig ekki hjá Tottenham og hefði félagið líklega átt að reka hann mikið fyrr. Spurs var næstum því fallið en bjargaði sér á lokadegi tímabilsins.

Postecoglou, fyrrum stjóri Tottenham, tók við Nottingham Forest snemma á tímabilinu en entist bara 39 daga í starfi. Þetta var samstarf sem passaði engan veginn.

Hver af þessum var eiginlega versti stjóri tímabilsins?

Hægt er að hlusta á Enska boltann í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.
Enski boltinn - Verðlaun fyrir tímabilið
Slapp
banner
banner