Fotbolti.net
18.06.26 - 19:00
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool leggur fram 87 milljóna punda tilboð í Diomande

Liverpool vill fá Diomande frá Leipzig

Liverpool vill fá Diomande frá Leipzig

Canon

Mynd: EPA

Liverpool hefur lagt fram 87 milljóna punda tilboð í Yan Diomande, vængmann RB Leipzig í Þýskalandi. Búist er við að Leipzig hafni tilboðinu, samkvæmt Philipp Hinze, blaðamanni Sky.
Þessi 19 ára gamli Fílabeinsstrendingur er aðalskotmark Liverpool í sumarglugganum.

Liverpool festi kaup á spænska vængmanninum Victor Munoz í dag og vill félagið bæta að minnsta kosti einum sóknarmanni til viðbótar við hópinn.

Sky segir að Liverpool hafi nú lagt fram formlegt tilboð í Diomande sem nemur um 87 milljónum punda. Tilboðið er sagt vera 78 milljónir punda auk 9 milljóna í bónusgreiðslur.

Leipzig mun hafna tilboðinu og afstaða félagsins er skýr. Félagið er ekki reiðubúið að selja Diomande á þessu verði, hvorki til Liverpool né Paris Saint-Germain, sem hefur einnig áhuga á leikmanninum.

Forráðamenn Leipzig vilja halda Diomande og vinna að því að framlengja samning hans. Þar yrði leikmaðurinn hækkaður verulega í launum en samningurinn myndi innihalda klásúlu.

Samkvæmt Sky þarf töluvert hærra tilboð til að sannfæra Leipzig um að selja Diomande í sumar.

Fabrizio Romano sagði rétt í þessu að Leipzig hafi hafnað tilboðinu, en að 105 milljónir punda gæti verið nóg til að koma félagaskiptunum yfir línuna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.