Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 29. maí 2026 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Köstuðu tennisboltum inn á völlinn í mótmælaskyni
Mynd: EPA
Írska landsliðið, undir stjórn Heimis Hallgrímssonar, vann Katar 1-0 í æfingaleik í Dublin í gær þar sem Nathan Collins skoraði sigurmarkið í upphafi leiks.

Leikurinn var stöðvaður í tvígang í fyrri hálfleik þegar stuðningsmenn írska liðsins köstuðu tennisboltum inn á völlinn.

Boltarnir voru merktir palestínska fánanum en þetta gerðu stuðningsmennirnir til að mótmæla komandi leikjum Íra gegn Ísrael í Þjóðadeildinni.

Stuðningsmönnunum var hent út svo það var hægt að halda leiknum áfram. Írska liðið mætir Ísrael á hlutlausum velli þann 27. september og í Dublin þann 4. október.


Slapp