Leikur Fram og Breiðabliks fór fram á Lambhagavelli í kvöld í 9. umferð Bestu deild karla. Fórbolti.net ræddi við Rúnar Kristinsson, þjálfara Fram, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Fram 4 - 3 Breiðablik
„Kærkominn sigur en óþarflega stressandi fyrir okkur þjálfarana miðað við stöðuna sem við vorum komnir í og færin sem við fengum. Frábært að vinna og fara með sigur á bakinu inn í fríið. Hvort sem við vinnum 4-1 eða 4-3 skiptir ekki öllu máli.''
Kennie Chopart hefur verið frábær á þessu tímabili og skoraði tvö mörk í kvöld og átti enn einn frábæra leikinn.
„Hann er búinn að vaxa inn í þetta hlutverk hjá okkur og okkar leikkerfi er frjálslynt, erum með leikmenn út um allan völl og hann fær að fara upp kantinn eða miðjuna og aðrir sjá um að covera fyrir hann. Þetta er eitthvað sem við höfum verið að vinna að í tvö og hálft ár og við erum bara að verða betri í því sem við erum að gera."
Fram situr í þriðja sæti með 20 stig eftir 9 umferðir og eru fimm stigum fyrir aftan Víkinga sem eru á toppnum. Eru Framarar farnir að horfa á baráttu um Íslandsmeistaratitilinn?
„Við erum ekkert að fara að breyta okkar fókus og það er bara næsti leikur. Eins og ég sagði fyrir mót þá vorum við í fimmta sæti í fyrra og við stefnum bara á að reyna að gera betur en það. Lykilatriðið er að vera í topp sex og sjá til þess að við getum verið nálægt þessum efstu liðum og eiga séns á að berjast um evrópusæti. En við erum ekkert að hugsa svona stórt og langt og hugsum bara um næsta leik."
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.





















