28.07.26 - 21:38
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeildin: Valdimar afgreiddi Ægi

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ægir 0 - 1 Njarðvík
0-1 Valdimar Jóhannsson ('3)
0-1 Valdimar Jóhannsson ('3)
Lestu um leikinn: Ægir 0 - 1 Njarðvík
Ægir og Njarðvík áttust við í eina leik kvöldsins í Lengjudeildinni og var Valdimar Jóhannsson ekki lengi að brjóta ísinn fyrir gestina. Varnarmenn heimamanna gleymdu sér, gáfu honum alltof mikinn tíma á boltanum svo hann skoraði strax á þriðju mínútu.
Gestirnir úr Njarðvík voru sterkari aðilinn en það var lítið um færi í nokkuð lokuðum fyrri hálfleik. Staðan var 0-1 í leikhlé og jafnaðist leikurinn út í síðari hálfleik.
Ægismenn sýndu fína takta en náðu ekki að skapa gott færi í afar lokuðum leik. Markið hans Valdimars reyndist nóg til að tryggja Njarðvíkingum dýrmæt stig.
Njarðvík er núna með 26 stig eftir 16 umferðir, situr í fimmta sætinu (umspilssæti) og er fimm stigum á eftir toppliði Aftureldingar sem á tvo leiki til góða. Ægir situr áfram á botninum með 8 stig.