Fotbolti.net
29.08.17 - 12:00
Elvar Geir Magnússon
Skrifar frá: Helsinki

Rúnar Alex: Þarf að reyna að jafna pabba

Auglýsing
Rúnar Alex á æfingunni í Finnlandi í dag.

Rúnar Alex á æfingunni í Finnlandi í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Ég er stoltur og spenntur að fá að vera með,\" sagði Rúnar Alex Rúnarsson við Fótbolta.net í Finnlandi í dag en hann er kominn inn í íslenska landsliðshópinn fyrir komandi verkefni.
„Þetta er eitthvað sem maður hefur stefnt að. Maður þarf að reyna að jafna pabba,\" sagði Rúnar og hló en faðir hans Rúnar Kristinsson er leikjahæsti leikmaðurinn í sögu landsliðsins með 104 leiki.

„Ég ætla að reyna að halda mér hérna í hópnum. Ég ætla ekki að sætta mig við að fá að vera með bara einu sinni. Ég er samt líka raunsær og veit að við erum með marga aðra góða kandídata. Ég ætla að gera mitt besta.\"

Kjaftstopp yfir góðu gengi
Rúnar hefur leikið vel með Nordsjælland á þessu tímabili en liðið er óvænt með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar eftir sjö umferðir.

„Maður er hálf kjaftstopp yfir þessu. Við seldum þrjá bestu leikmennina okkar og það fór einn í janúar. Við sóttum leikmenn í neðri deildirnar í Danmörku og í akademíurnar. Það bjóst enginn við að við yrðum efstir.\"

„Flestir þessara leikmanna eru strákar sem ég hef þekkt síðan ég fór út fyrir þremur árum. Við höfum haft nægan tíma til að læra inn á hvorn annan og þetta er allt að smella núna.\"


Rúnar var með fyrirliðabandið í leik hjá Nordsjælland á dögunum.

„Ég er einn af elstu leikmönnunum í liðinu sem er alveg fáránlegt. Ég er búinn að vera hvað lengst í aðalliðinu. Það eru margir sem hafa komið upp í aðalliðið á eftir mér. Þetta er mikill heiður og gaman,\" sagði Rúnar sem Rúnar segist finna að hann sé að bæta sig mikið hjá Nordsjælland. „Ég finn fyrir því. Ég er með mjög kröfuharðan og erfiðan markmannsþjálfara sem er duglegur að pressa á mann,\" sagði Rúnar.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Rúnar og félagar í Nordsjælland byrja tímabilið frábærlega.

Rúnar og félagar í Nordsjælland byrja tímabilið frábærlega.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.