29.08.26 - 13:44
Ívan Guðjón Baldursson
Ágúst Orri beint í byrjunarliðið

Mynd: Excelsior

Mynd: Excelsior
Ágúst Orri Þorsteinsson er í byrjunarliðinu hjá Excelsior strax í fyrsta leik eftir félagaskipti frá Breiðabliki í vikunni.

TENGT EFNI
Úr Bestu í hollensku úrvalsdeildina - „Vel undirbúinn fyrir þetta verkefni"
Ágúst Orri byrjar á vinstri kanti í heimaleik gegn Sparta Rotterdam. Nökkvi Þeyr Þórisson er á mála hjá Sparta og var í byrjunarliðinu fyrstu þrjá leiki tímabilsins en er ekki í hóp í dag.
Upphafsflautið er klukkan 14:30 og eigast liðin við á upphafsmetrunum á nýju tímabili í efstu deild hollenska boltans.
Excelsior er með þrjú stig eftir tvær fyrstu umferðirnar, einu stigi minna heldur en Sparta sem hefur þegar spilað þrjá leiki á deildartímabilinu.