29.08.26 - 16:45
Helgi Inguson
Anton Ingi: Erum þekktar fyrir að koma til baka
Auglýsing

„Við erum bestar þegar við náum að halda í boltann

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram tók á móti Stjörnunni í 17. umferð Bestu deildar kvenna á Lambhagavellinum í dag. Gestirnir komust tveimur mörkum yfir í byrjun leiks en Fram fullkomnaði endurkomu sína undir lok leiks og niðurstaðan 3-2 heimasigur. Fótbolti.net ræddi við Anton Inga Rúnarsson, þjálfara Fram, eftir leik.
Lestu um leikinn: Fram 3 - 2 Stjarnan
„Stjarnan var töluvert sterkari fyrstu tuttugu mínúturnar, við vorum eiginlega ekki mættar í byrjun og fengum tvö mörk á okkur. Við vissum að þær myndu mæta brjálaður til leiks eftir góðan sigur gegn Blikum. Þær sækja hratt á okkur og refsuðu okkur tvisvar," sagði Anton Ingi.
„Það var kannski vitundarvakningin okkar þegar við fáum annað markið á okkur, að við þyrftum aðeins að stíga á bensíngjöfina."
„Karakterinn í liðinu er frábær og hann er búinn að vera það í allt sumar. Við sögðum það í hálfleik að við erum þekktar fyrir að koma til baka, að við værum lið sem gefur ekkert eftir en að við værum að gera það í þessum fyrri hálfleik. Að nú ættum við það að inni að koma til baka og við skyldum svo sannarlega gera það. Við skulduðum fólkinu í Úlfarsárdalinn það að sýna frammistöðu og baráttu," sagði Anton Ingi að lokum.