Fotbolti.net
29.08.26 - 19:15
Sverrir Örn Einarsson

Besta deildin: Þór sendi KA á botninn

Sigfús Fannar hefur fundið skotskónna

Sigfús Fannar hefur fundið skotskónna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV 0 - 1 Þór
0-0 Vicente Rafael Valor Martínez ('30 , misnotað víti)
0-1 Sigfús Fannar Gunnarsson ('45 )
Rautt spjald: Bjarni Guðjón Brynjólfsson, Þór ('83)
Lestu um leikinn

ÍBV tók á móti Þór á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum nú í kvöld í sannkölluðum botnslag en liðin sátu í sætum 10 og 12 í deildinni fyrir leik dagsins. Leikurinn var síður en svo atvikalaus en fór þó að lokum að gestirnir úr Þorpinu á Akureyri tóku stigin þrjú með 1-0 lífsnauðsynlegum sigri. Sigurinn þýðir jafnframt að Þór lyftir sér úr botnsætinu í bili og sendir granna sína í KA á botninn.
Jafnræði var með liðunum í upphafi og álitlegar stöður voru í boði fyrir bæði lið. Á 8.mínútu leiksins kom Ágúst Eðvald Hlynsson boltanum í netið en dómarinn hafði þegar blásið í flautu sína til marks um að Þór skyldi endurtaka aukaspyrnu úti á velli þar sem boltinn var á ferð þegar honum var spyrnt.

Liðin skiptust á að sækja næstu mínútur en næst dró til tíðinda á 28.mínútu þegar Birgir Ómar Hlynsson braut á Sigurði Arnari Magnússyni innan teigs og Þórður Þorsteinn Þórðarson dómari leiksins benti á punktinn.

Vicente Valour steig upp fyrir heimamenn til þess að taka vítaspyrnuna en skaut framhjá markinu. Lánleysi Eyjamanna algjört.

Á 45.mínútu fengu gestirnir úr Þór aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi ÍBV. Vilhelm Ottó Biering Ottósson tók spyrnuna, setti boltann hárnákvæmt inn á markteiginn þar sem Sigfús Fannar Gunnarsson setti boltann í netið af stuttu færi. Markahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar 2025 verið að finna markaskóna að undanförnu sem gæti reynst liði Þórs dýrmætt.

Heimamenn komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og sóttu töluvert. Þeir fengu þó nokkrar góðar stöður til þess að jafna leikinn en sennilega enga betri en á 79.mínútu þegar Sigurður Arnar skallaði boltann fyrir markið á Aron Lucas Vokes sem tók boltann í fyrsta og smellti honum í stöngina á marki Þórs. Inn vildi boltinn ekki fyrir ÍBV.

Fjórum mínútum síðar syrti nokkuð í álinn fyrir gestina í Þór. Bjarni Guðjón Brynjólfsson átti lélega snertingu á boltann, Sesar Örn Harðarson nýtti sér það og hirti hann af honum og Bjarni Guðjón sá sér þann kost vænstan að brjóta á honum. Bjarni alltof seinn og Þórður lyfti rauða spjaldinu og Þór manni færri út leikinn.

Heimamenn reyndu hvað mest þeir máttu og fengu álitlegar stöður en komu boltanum ekki netið, Næst því komst fyrirliðinn Alex Freyr Hilmarsson er hann skallaði boltann í slánna eftir sendingu frá Vicente Valour.

Lokatölur 0-1 Þór í vil sem tryggja sér dýrmæt þrjú stig í harðri fallbaráttu og senda um leið lið KA í botnsætið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.