Fotbolti.net
29.08.26 - 13:01
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið dagsins: Lampard gerir þrjár breytingar

Byrjunarlið dagsins: Lampard gerir þrjár breytingar
Canon

Mynd: EPA

Það hefjast tveir leikir á sama tíma í ensku úrvalsdeildinni eftir um það bil klukkustund og hafa byrjunarliðin verið staðfest.
Það eru tveir spennandi slagir á dagskrá þar sem Bournemouth og Everton eigast við á meðan Coventry spilar við Hull City í nýliðaslag.

Marco Rose þjálfari Bournemouth mætir til leiks með sama byrjunarlið sem tapaði naumlega gegn Manchester City í fyrstu umferð. Evanilson leiðir sóknarlínuna með Rayan, Justin Kluivert og Marcus Tavernier fyrir aftan sig.

David Moyes þjálfari Everton gerir eina breytingu frá sigri gegn Crystal Palace í fyrstu umferð. James Garner byrjar á miðjunni í staðinn fyrir Hayden Hackney sem sest á bekkinn.

Í nýliðaslagnum gerir Frank Lampard þrjár breytingar á byrjunarliði Coventry City sem steinlá gegn Englandsmeisturum Arsenal á Emirates. Taiwo Awoniyi, Jack Rudoni og Ephron Mason-Clark koma inn í byrjunarliðið fyrir Brandon Thomas-Asante, Ellis Simms og Frank Onyeka. Sá síðastnefndi er líklega að glíma við meiðsli.

Sergej Jakirovic þjálfari Hull gerir að lokum eina breytingu frá fræknum sigri gegn Manchester United um síðustu helgi, þar sem Hidemasa Morita kemur inn á miðjuna fyrir Matt Crooks sem er ekki í hóp.

Bournemouth: Petrovic, Smith, Hill, Silva, Truffert, Cook, Scott, Rayan, Kluivert, Tavernier, Evanilson.
Varamenn: Di Gregorio, Soler, Brooks, Christie, Gannon-Doak, Adams, Diakite, Jebbison, Rodriguez.

Everton: Pickford, Röhl, Tarkowski, Branthwaite, Mykolenko, Garner, Armstrong, Dewsbury-Hall, Ndiaye, George, Barry
Varamenn: Travers, Keane, Beto, O’Brien, Dibling, Johnson, Alcaraz, Hackney, Iroegbunam.



Coventry: Rushworth, Van Ewijk, Amenda, Thomas, Dasilva, Grimes, Yirenkyi, Rudoni, Tchaouna, Awoniyi, Mason-Clark.
Varamenn: Bentley, Pinnock, Sakamoto, Simms, Kitching, Latibeaudiere, Thomas-Asante, Torp, Hamer.

Hull City: Tzolakis, Coyle, Ajayi, Egan, Mendy, Giles, Slater, Morita, Belloumi, McBurnie, Stroud.
Varamenn: Phillips, Millar, Hjertø-Dahl, McNair, Drameh, Herrington, Targett, Gourna-Douath, Cho.
Byrjunarlið dagsins: Lampard gerir þrjár breytingar
Canon

Mynd: EPA

Byrjunarlið dagsins: Lampard gerir þrjár breytingar
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.