29.08.26 - 15:34
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Tottenham og Newcastle: Marmoush og Nico byrja

Mynd: Tottenham

Mynd: Newcastle United

Mynd: Tottenham
Tottenham Hotspur og Newcastle United eigast við í gífurlega spennandi slag í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Hér mætast tvö félög sem stóðust alls ekki þær væntingar sem gerðar voru af stuðningsmönnum á síðustu leiktíð og hafa bæði verið virk á leikmannamarkaðinum í sumar.
Roberto De Zerbi þjálfari Tottenham gerir fimm breytingar á byrjunarliðinu sem steinlá gegn Brentford í fyrstu umferð. Micky van de Ven kemur inn fyrir Marcos Senesi í hjarta varnarinnar og þá tekur Rodrigo Bentancur sæti á miðjunni fyrir Svíann efnilega Lucas Bergvall.
Í sóknarlínunni fá Pedro Porro, Mateus Fernandes og Omar Marmoush tækifæri til að spreyta sig. Mikey Moore og Conor Gallagher setjast á bekkinn og er Richarlison ekki í hóp. Marmoush er nýkominn til Tottenham frá Manchester City, Savinho kom á svipuðum tíma en er ekki í hóp.
Matthias Jaissle gerir tvær breytingar á byrjunarliðinu sem gerði jafntefli við Liverpool í fyrstu umferð. Nico González, sem er nýkominn frá Man City, fer beint inn í byrjunarliðið og mætir því fyrrum liðsfélaga sínum Marmoush strax í fyrsta leik hjá nýju félagi.
Nico byrjar á miðjunni og kemur Joe Willock einnig inn í byrjunarliðið. Hann tekur stöðu William Osula í byrjunarliðinu þar sem Daninn er að glíma við meiðsli og er ekki í hóp. Yoane Wissa er í fremstu víglínu með Nick Woltemade á bekknum.
Tottenham: Kinsky; Gray, Van Hecke, Van de Ven, Robertson; Bentancur, Tonali; Porro, Fernandes, Tel; Marmoush.
Varamenn: Dubravka, Senesi, Gallagher, Udogie, Bergvall, Solanke, Kudus, Davies, Moore.
Newcastle: Hornicek; Dedic, Thiaw, Botman, Hall; Miley, Gonzalez; Elanga, Willock, Barnes; Wissa.
Varamenn: Jaouen, Schar, Bamba, Steur, Toure, Murphy, Woltemade, Ramsey, Shahar.