Fotbolti.net
29.08.26 - 16:03
Ívan Guðjón Baldursson

England: Everton náði að jafna - Hull stal stigunum

England: Everton náði að jafna - Hull stal stigunum
Canon

Mynd: EPA

Tveimur leikjum var að ljúka í ensku úrvalsdeildinni þar sem Everton náði jafntefli eftir að hafa lent undir á útivelli gegn Bournemouth.
Viðureignin í Bournemouth var skemmtileg og fengu gestirnir bestu færin í fyrri hálfleik en tókst ekki að skora. Þess í stað náði Alex Scott forystunni með laglegu skoti rétt innan við vítateigslínuna eftir vel útfærða skyndisókn.

Staðan var 1-0 í leikhlé og var seinni hálfleikurinn nokkuð jafn, en heimamenn fengu bestu færin. Þeim tókst þó ekki að tvöfalda forystuna og fengu það í bakið í uppbótartíma þegar lærlingar David Moyes skoruðu eftir hornspyrnu. Boltinn datt til James Tarkowski eftir misheppnaða hreinsun heimamanna og skoraði miðvörðurinn gott mark með föstu skoti af nokkuð stuttu færi til að bjarga stigi. Lokatölur 1-1.

Everton er með fjögur stig eftir tvær umferðir en þetta er fyrsta stig Bournemouth undir stjórn Marco Rose, eftir naumt tap gegn Manchester City í fyrstu umferð.

Coventry City tók þá á móti Hull City í nýliðaslag og voru heimamenn sterkari aðilinn í fyrri hálfleik, en tókst ekki að skora.

Seinni hálfleikurinn var talsvert jafnari og fengu gestirnir frá Hull hættulegri færi. Kanadíski landsliðsmaðurinn Liam Millar kom inn af bekknum og nýtti eitt slíkt færi eftir skyndisókn á 82. mínútu, sem reyndist eina mark leiksins. Lokatölur 0-1.

Hull er óvænt með sex stig eftir tvær fyrstu umferðirnar á meðan Coventry er án stiga.

Bournemouth 1 - 1 Everton
1-0 Alex Scott ('41 )
1-1 James Tarkowski ('91)

Coventry 0 - 1 Hull City
0-1 Liam Millar ('82 )
England: Everton náði að jafna - Hull stal stigunum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.