29.08.26 - 13:27
Ívan Guðjón Baldursson
England: Liverpool lenti tvisvar undir á Anfield

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Liverpool 2 - 2 Nott. Forest
0-1 Dan Ndoye ('24)
1-1 Alexander Isak ('60)
1-2 Morgan Gibbs-White ('70, víti)
2-2 Victor Munoz ('82)
0-1 Dan Ndoye ('24)
1-1 Alexander Isak ('60)
1-2 Morgan Gibbs-White ('70, víti)
2-2 Victor Munoz ('82)
Liverpool og Nottingham Forest áttust við í opnum og skemmtilegum leik í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Gestirnir frá Nottingham voru talsvert sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og náðu forystunni með marki frá Dan Ndoye á 24. mínútu eftir að varnarmenn Liverpool sofnuðu á verðinum. Langur bolti barst upp völlinn og töpuðu varnarmenn heimamanna baráttunni um fyrsta boltann á meðan Cody Gakpo steinsofnaði á verðinum.
Gakpo átti að vera mættur í hægri bakvarðarstöðuna til að verjast en gleymdi sér í því að glápa á boltann, sem gerði Ndoye kleift að athafna sig og skora án pressu eftir að boltinn barst til hans frá Morgan Gibbs-White.
Florian Wirtz hélt hann hefði jafnað metin skömmu síðar en ekki dæmt mark vegna rangstöðu hjá Jeremie Frimpong. Forest komst nálægt því að tvöfalda forystuna en Alisson Becker hélt sínum mönnum í leiknum með góðum vörslum. Staðan var 0-1 í leikhlé.
Síðari hálfleikurinn var talsvert jafnari þar sem heimamenn voru hættulegri aðilinn og jafnaði Alexander Isak metin af stuttu færi eftir frábæran undirbúning frá Cody Gakpo sem lét fyrirgefa sér varnarmistökin frá því í fyrri hálfleik.
Tíu mínútum síðar gerði Neco Williams mjög vel að fiska vítaspyrnu eftir að hafa sloppið í gegn og skoraði Gibbs-White örugglega af punktinum til að endurheimta forystuna.
Liverpool jók sóknarþungan í kjölfarið og náði að setja annað jöfnunarmark á 82. mínútu. Víctor Munoz gerði mjög vel að skora eftir sendingu frá Wirtz.
Bæði lið sköpuðu hálffæri til að sækja sigurmark á lokakaflanum en tókst ekki, svo lokatölur urðu 2-2.
Liverpool er með tvö stig eftir tvær umferðir undir stjórn Andoni Iraola og markatöluna 4-4. Forest er komið með sitt fyrsta stig undir stjórn Oliver Glasner.