29.08.26 - 15:05
Ívan Guðjón Baldursson
Hlín setti þrennu í frábærum sigri

Mynd: Malmö

Mynd: Fótbolti.net - Kara Líf Ingibergsdóttir

Mynd: Malmö

Atvinnukonurnar okkar sem leika erlendis gerðu flotta hluti í dag þar sem Hlín Eiríksdóttir var fremst í flokki og setti þrennu í sigri Malmö í efstu deild sænska boltans.
Hlín skoraði þrjú fyrstu mörkin í flottum sigri á útivelli gegn Växjö, lokatölur 0-4. Malmö er í Evrópusæti með 29 stig eftir 16 umferðir, fjórum stigum fyrir ofan Íslendingalið Kristianstad sem vann á útivelli gegn AIK.
Elísa Lana Sigurjónsdóttir og Alexandra Jóhannsdóttir byrjuðu í sigri Kristianstad.
Íslendingalið BK Häcken og Hammarby verma toppsæti deildarinnar enda eru þau langbestu lið Svíþjóðar um þessar mundir. Átján ára Thelma Karen Pálmadóttir lék allan leikinn í 0-1 sigri Hacken á útivelli gegn Rosengård. Hacken er með 45 stig á toppinum, með 15 sigra og 1 tap.
Hammarby fylgir fast á eftir með 41 stig eftir sigur gegn Vittsjö. Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn í 3-1 sigri Hammarby á meðan Ída Marín Hermannsdóttir sat á bekknum.
Að lokum lék Emelía Óskarsdóttir fyrstu klukkustundina í sigri hjá ríkjandi meisturum HB Köge gegn Aarhus í danska boltanum. Köge er með fullt hús stiga eftir fimm umferðir.
Vaxjo 0 - 4 Hammarby
0-1 Hlín Eiríksdóttir ('27)
0-2 Hlín Eiríksdóttir ('34)
0-3 Hlín Eiríksdóttir ('52)
0-4 Tuva Skoog ('57)
AIK 0 - 1 Kristianstad
Rosengard 0 - 1 Hacken
Hammarby 3 - 1 Vittsjo
Aarhus 0 - 2 HB Koge