Fotbolti.net
29.08.26 - 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ísland í dag - Afturelding getur tryggt sér sæti í Bestu deildinni

Ísland í dag - Afturelding getur tryggt sér sæti í Bestu deildinni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Endaspretturinn í íslenska boltanum er í fullum gangi en Afturelding getur t.d. tryggt sér sæti í Bestu deildinni.

Liðið fær Vestra í heimsókn og tryggir sér efsta sætið í Lengjudeildinni og þar með sæti í Bestu deildinni með sigri. Þá er spenna í fallbaráttunni en Völsungur og Grindavík eru í harðri baráttu. Grindavík er í öruggu sæti, stigi á undan Völsungi sem er í fallsæti. Bæði lið eiga heimaleik í dag.

Þá er botnbaráttuslagur í Bestu deildinni þar sem Þór heimsækir ÍBV til Eyja. Þór fer upp úr fallsæti og sendir ÍBV í fallsæti í leiðinni með sigri.

Fjórir leikir í næst síðustu umferð Bestu deildar kvenna fyrir tvískiptinguna fara fram í dag. Breiðablik getur náð sex stiga forystu á FH í titilbaráttunni en FH spilar á morgun. Þá er spennandi leikur milli Þróttar og Þór/KA sem berjast um að enda í efri hlutanum. Þróttur er í 6. sæti, tveimur stigum á undan Þór/KA sem er í 7. sæti.

Grótta getur tryggt sér sigur í Lengjudeild kvenna og þar með sæti í Bestu deildinni en liðið mætir Selfossi. Völsungur þarf á sigri að halda gegn ÍA til að eiga möguleika á að halda sér uppi.

Þá getur Selfoss endurheimt 2. sæti í 2. deild karla en liðið mætir Magna. KFG getur komist upp úr fallsæti með góðum úrslitum gegn Dalvík/Reyni.

Fjölnir og Einherji berjast hart um efsta sætið í 2. deild kvenna. þá er spilað í 3.deild, 4. deild og úrslitum 5. deildar.
laugardagur 29. ágúst

Besta karla
17:00 ÍBV-Þór (Hásteinsvöllur)

Besta kvenna
14:00 Fram-Stjarnan (Lambhagavöllurinn)
14:00 Víkingur R.-Grindavík/Njarðvík (Víkingsvöllur)
16:00 Þróttur R.-Þór/KA (PEPSI völlurinn)
16:00 Breiðablik-ÍBV (Eikarvöllurinn)

Lengjudeild karla
14:00 Leiknir R.-Njarðvík (Leiknisvöllur)
14:00 Grindavík-HK (Stakkavíkurvöllur)
14:00 Afturelding-Vestri (Malbikstöðin að Varmá)
16:00 Völsungur-ÍR (GPG völlurinn)

Lengjudeild kvenna
14:00 Grótta-Selfoss (Vivaldivöllurinn)
16:00 FHL-Tindastóll (Fjarðabyggðarhöllin)
16:00 ÍA-Völsungur (Akraneshöllin)

2. deild karla
14:00 Selfoss-Magni (JÁVERK-völlurinn)
14:00 Víkingur Ó.-Haukar (Ólafsvíkurvöllur)
14:00 Kormákur/Hvöt-KFA (Blönduósvöllur)
16:00 Dalvík/Reynir-KFG (Dalvíkurvöllur)

3. deild karla
14:00 KV-Sindri (KR-völlur)
14:00 Höttur-Ýmir (Rafey-völlurinn)
15:00 Tindastóll-KH (Sauðárkróksvöllur)
16:00 KF-Augnablik (Ólafsfjarðarvöllur)

4. deild karla
14:00 KFR-Hafnir (SS-völlurinn)

2. deild kvenna - A úrslit
14:00 Fylkir-Fjölnir (tekk VÖLLURINN)
14:00 Vestri-Einherji (Kerecisvöllurinn)

5. deild karla - Úrslit
12:00 Smári-Hamrarnir (Fagrilundur - gervigras)
14:00 Stokkseyri-Skallagrímur (Stokkseyrarvöllur)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2KR20+2743
3Fram20+1443
4Breiðablik20+530
5Keflavík20-328
6ÍA20-426
7Stjarnan20-1024
8Valur20-723
9FH20-1218
10ÍBV20-1217
11KA20-1416
12Þór20-3015
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.