Fotbolti.net
29.08.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Komið sterkur inn í Skagaliðið og fær nýjan samning

Komið sterkur inn í Skagaliðið og fær nýjan samning
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Styrmir Jóhann Ellertsson hefur skrifað undir nýjan samning við ÍA sem gildir út tímabilið 2030.
Styrmir fagnaði 18 ára afmælinu sínu á þessu ári en hann hefur verið í byrjunarliðinu í sex af síðustu átta leikjum.

„Styrmir Jóhann kemur úr öflugu yngri flokkastarfi félagsins og er fjölhæfur leikmaður sem getur bæði leyst stöðu bakvarðar og miðvarðar. Í undanförnum leikjum hefur hann spilað á miðjunni og staðið sig þar með mikilli prýði," segir í tilkynningu ÍA.

Hann hefur spilað 20 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.