Fotbolti.net
29.08.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Leikmaður Chelsea á leið til Leipzig

Leikmaður Chelsea á leið til Leipzig
Canon

Mynd: EPA

Marc Guiu, framherji Chelsea, er á leið til Leipzig. Fabrizio Romano greinir frá.

Þessar fréttir eru mjög óvæntar en hann hefur ekki verið orðaður við þýska félagið í sumar.
Romano segir að það sé allt klappað og klárt og hann sé á leið til Þýskalands. Leipzig kaupir hann frá Chelsea.

Guiu gekk til liðs við Chelsea frá Barcelona árið 2024 en hefur aðeins spilað 29 leiki og skorað átta mörk fyrir liðið. Hann fór til Sunderland á láni í byrjun ágúst í fyrra en var kallaður til baka undir lok þess mánaðar vegna meiðsla Liam Delap. Hann spilaði aðeins þrjá leiki fyrir Sunderland og skoraði eitt mark.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.