29.08.26 - 10:15
Ívan Guðjón Baldursson
Ná samkomulagi um kaupverð fyrir Barcola
Á leið í læknisskoðun hjá Liverpool

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sky Sports er meðal fjölmiðla sem greinir frá því að Liverpool sé búið að ná samkomulagi við Paris Saint-Germain um kaupverð fyrir franska landsliðsmanninn Bradley Barcola. Hann fer í læknisskoðun um helgina.

TENGT EFNI
Iraola um Barcola: Vonandi koma góðar fréttir fljótlega
Liverpool borgar um 125 milljónir evra fyrir Barcola en sú upphæð getur hækkað um 20 milljónir til viðbótar með árangurstengdum aukagreiðslum.
Þá segir að Barcola sé búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir fimm ára samningi hjá Liverpool eftir að hafa komið við sögu í 152 leikjum á þremur árum hjá PSG.
Talið er að félagaskiptin verði staðfest um eða eftir helgina og er mögulegt að hinn eftirsótti Cody Gakpo verði seldur frá Liverpool fyrst Barcola er kominn. Liverpool hefur einnig verið orðað við Ismaïla Sarr hjá Crystal Palace og Yankuba Minteh hjá Brighton.

Koma Barcola opnar dyrnar fyrir Gakpo að fara

Mynd: EPA