Fotbolti.net
29.08.26 - 11:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sjáðu magnaða vörslu Ásgeirs Orra - „Kæmi mér rosalega á óvart ef hann verður hérna í 2-3 ár"

Sjáðu magnaða vörslu Ásgeirs Orra - „Kæmi mér rosalega á óvart ef hann verður hérna í 2-3 ár"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásgeir Orri Magnússon, markvörður Keflavíkur, hefur átt gott fyrsta tímabil í efstu deild. Hann varði mark Keflvíkinga í lokaleikjunum 2023 og var aðalmarkvörður 2024. Hann hins vegar missti af tímabilinu 2025 vegna meiðsla og hefur verið virkilega góður á yfirstandandi tímabili.

Ásgeir er fæddur 2004 og var skotmark Vals fyrir tímabilið 2025 en Keflavík hleypti honum ekki þangað.
Hann átti magnaða vörslu í sigri Keflvíkinga gegn ÍBV um síðustu helgi. Hann hafði daginn áður fengið lof í Útvarpsþættinum Fótbolti.net og eftir leik fékk hann hrós frá þjálfaranum.

„Ásgeir í markinu, hann er virkilega öflugur og það kæmi mér rosalega á óvart ef hann verður hérna í 2-3 ár (í viðbót)," sagði Jónas Guðni Sævarsson, yfirmaður fótboltamála hjá Keflavík, fyrir viku síðan. Viðtalið má nálgast í spilaranum neðst.

Keflavík sigraði ÍBV 1-0 síðasta sunnudag en Eyjamenn fengu sénsa til að jafna. Vörsluna má sjá hér að neðan.

„Heppnin var með okkur og góður markmaður. Ásgeir ver frábærlega í lokin," sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari liðsins. Það var í fimmta sinn í sumar sem Ásgeir heldur hreinu.

„Ég hef ekki áhyggjur af því að erlend félög séu að horfa til minna manna, auðvitað getur allt gerst í þessu. Ef menn standa sig vel þá er alltaf möguleiki á því að þeir verði keypt eitthvert erlendis," bætti Halli við.



Útvarpsþátturin Fótbolti.net er alla laugardaga á X977 milli kl 12-14.
Sjáðu magnaða vörslu Ásgeirs Orra - „Kæmi mér rosalega á óvart ef hann verður hérna í 2-3 ár"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sjáðu magnaða vörslu Ásgeirs Orra - „Kæmi mér rosalega á óvart ef hann verður hérna í 2-3 ár"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útvarpsþátturinn - Stórtíðindi í þjálfaramálum og kraftur í Keflavík

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.