Fotbolti.net
29.08.26 - 11:44
Ívan Guðjón Baldursson

Snýr aftur til Chelsea eftir misheppnaða lánsdvöl

Snýr aftur til Chelsea eftir misheppnaða lánsdvöl
Canon

Mynd: EPA

Það ætlar ekkert að ganga upp hjá kantmanninum efnilega Kendry Páez sem gekk til liðs við Chelsea í fyrrasumar.
Chelsea lánar Paez til River Plate (Staðfest)
TENGT EFNI

Chelsea lánar Paez til River Plate (Staðfest)

Hann lék á láni með systurfélaginu Strasbourg á síðustu leiktíð en stóðst ekki væntingar. Honum tókst ekki að ryðja sér leið í byrjunarliðið og fékk að enda lánssamninginn fyrr í leit að meiri spiltíma hjá öðru félagsliði.

Hann hélt því til argentínska stórveldisins River Plate á eins árs lánssamningi í janúar en sagan frá Strasbourg endurtók sig, Páez komst ekki í byrjunarliðið og var notaður sem varamaður inn af bekknum. Því hefur verið ákveðið að binda enda á lánið snemma og er líklegt að táningurinn verði lánaður út til nýs félags fyrir gluggalok.

Páez er 19 ára gamall og með sjö ár eftir af samningi sínum við Chelsea. Hann er með 27 landsleiki að baki fyrir Ekvador þrátt fyrir ungan aldur.
Snýr aftur til Chelsea eftir misheppnaða lánsdvöl
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.