29.08.26 - 15:49
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Ísak lék allan leikinn - Campbell skoraði

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ísak Bergmann Jóhannesson var í byrjunarliðinu hjá FC Köln og lék allan leikinn í frábærum 3-2 sigri gegn Hoffenheim í dag.
Liðin áttust við í fyrstu umferð á nýju deildartímabili í efstu deild í Þýskalandi og náðu gestirnir frá Hoffenheim forystunni í tvígang er liðin mættust í Köln.
Tvítugur Max Moerstedt kom inn af bekknum í liði Hoffenheim og klúðraði vítaspyrnu fjórum mínútum síðar, áður en Ozan Kabak endurheimti forystuna eftir stoðsendingu frá Vladimir Coufal.
Thijs Dallinga er nýgenginn til liðs við Köln eftir misheppnaða dvöl hjá Bologna á Ítalíu og kom hann inn af bekknum í stöðunni 1-2 og átti heldur betur eftir að snúa stöðunni við. Hann skoraði tvennu á lokakaflanum svo lokatölur urðu 3-2 fyrir Köln.
Á sama tíma var íslenski Bandaríkjamaðurinn Cole Campbell í byrjunarliðinu hjá nýliðum Elversberg gegn stórliði Bayer Leverkusen og skoraði hann annað mark leiksins.
Nýliðarnir áttu frábæran fyrri hálfleik og leiddu 2-0 í leikhlé áður en þeir settu þriðja markið strax í upphafi síðari hálfleiks. Gestirnir frá Leverkusen skiptu um gír og sóttu stíft, þeim tókst að minnka muninn niður í eitt mark en það dugði ekki til. Lokatölur 3-2 fyrir Campbell og félaga.
Elversberg festi kaup á Campbell fyrr í sumar eftir tveggja ára dvöl hjá Borussia Dortmund. Campbell er tvítugur og með 6 mörk í 13 leikjum fyrir yngri landslið Bandaríkjanna - auk þess að eiga 2 mörk í 7 leikjum fyrir U17 landslið Íslands.
Campbell lék fyrstu 65 mínúturnar og var skipt af velli í stöðunni 3-0.
Í öðrum leikjum dagsins skoraði Norðmaðurinn ungi Antonio Nusa í þægilegum sigri RB Leipzig gegn Borussia Mönchengladbach, á meðan 22 ára Younes Ebnoutalib setti þrennu í sex marka jafntefli hjá Eintracht Frankfurt.
Ebnoutalib þykir gríðarlega efnilegur og skoraði öll mörk Frankfurt á útivelli gegn Union Berlin.
Mainz gerði að lokum markalaust jafntefli við Paderborn.
Koln 3 - 2 Hoffenheim
0-1 Adam Daghim ('27 )
1-1 Said El Mala ('51 )
1-1 Max Moerstedt ('57 , Misnotað víti)
1-2 Ozan Kabak ('67 )
2-2 Thijs Dallinga ('72 )
3-2 Thijs Dallinga ('82 )
Union Berlin 3 - 3 Eintracht Frankfurt
1-0 Emmanuel Latte Lath ('3 )
1-1 Younes Ebnoutalib ('10 )
1-2 Younes Ebnoutalib ('11 )
1-3 Younes Ebnoutalib ('67 )
2-3 Leopold Querfeld ('79 )
3-3 Tim Skarke ('90 )
Mainz 0 - 0 Paderborn
RB Leipzig 3 - 0 Borussia M.
1-0 Ridle Baku ('25 )
2-0 Antonio Nusa ('49 )
3-0 Rocco Reitz ('66 )
Elversberg 3 - 2 Bayer
1-0 Lukas Petkov ('8 )
2-0 Cole Campbell ('9 )
3-0 David Mokwa ('46 )
3-1 Patrik Schick ('77 )
3-2 Christian Kofane ('90 )