Fotbolti.net
29.08.26 - 10:00
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

X977 í beinni 12:00 - Fótboltaflóð á laugardegi

X977 í beinni 12:00 - Fótboltaflóð á laugardegi
Canon

Mynd: Fótbolti.net

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á dagskrá á X977 í dag milli 12 og 14 eins og venjan er á laugardögum. Það verður af nægu að taka í þætti dagsins enda fótboltaflóð í gangi.

Smelltu hér til að hlusta á X977 í beinni

Elvar Geir og Benedikt Bóas verða í hljóðveri í þætti dagsins og með þeim verður Valur Páll íþróttafréttamaður á Sýn.
Hitað verður sérstaklega upp fyrir komandi stórleik í Bestu deildinni, viðureign KR og Víkings á þriðjudag. Aðrir leikir í Bestu deildinni, Lengjudeildin, Infantino og enski boltinn koma svo auðvitað líka við sögu.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X977 alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X977 á netinu með því að smella hérna
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.