
England um helgina - Stórleikur á Tottenham Hotspur vellinum

Tottenham er í 4. sæti tveimur stigum á eftir Liverpool sem situr í 2. sæti

Mynd: Getty Images

Tottenham er í 4. sæti tveimur stigum á eftir Liverpool sem situr í 2. sæti

Mynd: Getty Images
Það verður mikið um að vera í ensku úrvalsdeildinni á morgun en þá verða átta leikir á dagskrá.
Fyrsti leikur helgarinnar er viðureign Aston Villa og Brighton en bæði lið féllu úr leik í enska deildabikarnum í vikunni. Everton lagði Aston Villa og Chelsea lagði Brighton.
Everton fær nýliða Luton í heimsókn en nýliðarnir náðu í sitt fyrsta stig um síðustu helgi þegar liðið gerði jafntefli gegn Wolves. Everton vann sinn fyrsta leik í deildinni þegar liðið vann Brentford.
Bournemouth fær Arsenal í heimsókn. Manchester United og Crystal Palace mætast á Old Trafford og topplið Manchester City heimsækir Wolves. Síðdegisleikurinn er svo stórleikur Tottenham og Liverpool.
Aðeins einn leikur er á sunnudag og einn til viðbótar á mánudag. Á þriðjudagskvöldið mætast svo Luton og Burnley en þeim leik var frestað í fyrstu umferð þar sem Kenilworth Road heimavöllur Luton var ekki klár í slaginn fyrir úrvalsdeildina.
laugardagur 30. september
11:30 Aston Villa - Brighton
14:00 Everton - Luton
14:00 Newcastle - Burnley
14:00 West Ham - Sheffield Utd
14:00 Bournemouth - Arsenal
14:00 Man Utd - Crystal Palace
14:00 Wolves - Man City
16:30 Tottenham - Liverpool
sunnudagur 1. október
13:00 Nott. Forest - Brentford
mánudagur 2. október
19:00 Fulham - Chelsea
Þriðjudagur 3. október
18:30 Luton - Burnley
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 0 | 0 | 0 |
| 2 | Aston Villa | 0 | 0 | 0 |
| 3 | Bournemouth | 0 | 0 | 0 |
| 4 | Brentford | 0 | 0 | 0 |
| 5 | Brighton | 0 | 0 | 0 |
| 6 | Chelsea | 0 | 0 | 0 |
| 7 | Coventry | 0 | 0 | 0 |
| 8 | Crystal Palace | 0 | 0 | 0 |
| 9 | Everton | 0 | 0 | 0 |
| 10 | Fulham | 0 | 0 | 0 |
| 11 | Hull City | 0 | 0 | 0 |
| 12 | Ipswich Town | 0 | 0 | 0 |
| 13 | Leeds | 0 | 0 | 0 |
| 14 | Liverpool | 0 | 0 | 0 |
| 15 | Manchester City | 0 | 0 | 0 |
| 16 | Manchester Utd | 0 | 0 | 0 |
| 17 | Newcastle | 0 | 0 | 0 |
| 18 | Nott. Forest | 0 | 0 | 0 |
| 18 | West Ham | 38 | -19 | 39 |
| 19 | Burnley | 38 | -37 | 22 |
| 19 | Sunderland | 0 | 0 | 0 |
| 20 | Wolves | 38 | -41 | 20 |
| 20 | Tottenham | 0 | 0 | 0 |



