Fotbolti.net
29.09.26 - 17:44
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarliðin í Þjóðadeildinni: Trent byrjar hjá Englendingum í fyrsta sinn í tæp tvö ár

Trent er í byrjunarliði Englands

Trent er í byrjunarliði Englands

Canon

Mynd: EPA

Fjölmargir leikir eru á dagskrá í Þjóðadeildinni í kvöld. England heimsækir meðal annars Tékkland og þá mæta heims- og Evrópumeistarar Spánar Króötum. Leikirnir hefjast klukkan 18:45.
Thomas Tuchel hefur valið byrjunarlið Englands fyrir leikinn gegn Tékkum í A-deildinni og gerir nokkrar breytingar.

Trent Alexander-Arnold kemur inn í hægri bakvörðinn í sínum fyrsta byrjunarliðsleik með Englendingum í tæp tvö ár og Trevoh Chalobah tekur sæti Ezri Konsa sem er tæpur og byrjar á bekknum.

Lewis Hall kemur inn fyrir Nico O'Reilly og Morgan Rogers tekur sæti Jude Bellingham.

Hinn 18 ára gamli Rio Ngumoha er á bekknum eftir að hafa verið utan hóps í síðasta leik.

Fimm breytingar eru gerðar á liði Spánverja fyrir leikinn gegn Króötum. Dean Huijsen, Fermín Lopez, Martin Zubimendi, Alex Baena og Mikel Oyarzabal koma allir inn í byrjunarliðið.

Tékkland: Kovar; Krejci, Hranac, Chaloupek, Slama; Sadilek, Cerv; Karabec, Sulc, Radosta; Hlozek

England: Trafford; Alexander-Arnold, Chalobah, Guehi, Hall; Rogers, Lewis-Skelly, Anderson; Saka, Gordon; Kane.



Spánn: Unai Simón; Marc Pubill, Cubarsí, Huijsen, Cucurella; Fermín López, Zubimendi, Fabián Ruiz; Baena, Oyarzabal, Lamine Yamal

Króatía: Livakovic; Smolcic, Pongracic, Sutalo, Gvardiol, Perisic; Kovavic, Pasalic; Susic, Misic; Beljo.

Allir leikir kvöldsins:

Þjóðadeildin A
18:45 Tékkland - England
18:45 Spánn - Króatía

Þjóðadeildin B
18:45 Skotland - Sviss
18:45 Slóvenía - Norður Makedónía

Þjóðadeildin C
18:45 Bulgaria - Eistland
18:45 Lúxemborg - Ísland
18:45 San Marino - Albanía
18:45 Slóvakía - Kasakstan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.