Fotbolti.net
29.09.26 - 19:30
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Fá ekki að kveðja Messi

Dybala fær ekki að kveðja Messi

Dybala fær ekki að kveðja Messi

Canon

Mynd: EPA

Ítalska félagið Roma hefur bannað þeim Nahuel Molina og Paulo Dybala að ferðast til Argentínu til að vera viðstaddir kveðjuleik Lionel Messi með landsliðinu.
Messi mun kveðja argentínska landsliðið þann 6. október þegar liðið mætir Benín á Monumental-leikvanginum í Buenos Aires.

Dybala og Molina, sem leika báðir með Roma, fengu boð um að mæta á kveðjuleikinn og fá þannig tækifæri til að kveðja einn besta leikmann í sögu argentínska landsliðsins.

Roma hafnaði hins vegar beiðni um að leyfa þeim að ferðast til Argentínu og ætlast félagið til þess að þeir mæti á tilsettum tíma til æfinga.

Báðir urðu heimsmeistarar með Messi í Katar árið 2022, en verða að sætta sig við að fylgjast með kveðjustundinni úr fjarlægð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.