29.09.26 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Óli Jó og Pétur Péturs fengu gullmerki

Börkur Edvardsson stjórnarmaður KSÍ, Þorvaldur Örlygsson formaður, Pétur Pétursson og Ólafur Jóhannesson.

Mynd: KSÍ

Stjórn KSÍ ákvað að afhenda Ólafi Jóhannessyni og Pétri Péturssyni gullmerki KSÍ og var þeim afhent merkið í hálfleik á leik Íslands og Eistlands síðasta laugardag.
Af heimasíðu KSÍ:
Ólafur Davíð Jóhannesson
Ólafur Jó hefur um áratugaskeið verið áberandi í íslenskri knattspyrnu, bæði sem leikmaður og ekki síst sem þjálfari. Hann hefur stýrt félagsliðum og íslenska landsliðinu og er einn sigursælasti þjálfari Íslands. Hann hefur látið verulega að sér kveða í þróun og uppbyggingu íslensks fótbolta. Óli Jó er þekktur fyrir leiðtogahæfni, fagmennsku og öflugt framlag sitt til íslenskrar knattspyrnu.
Pétur Pétursson
Pétur Pétursson á að baki glæsilegan feril sem leikmaður og þjálfari. Hann var einn fremsti framherji Íslands á sínum tíma og hefur á löngum ferli lagt mikið af mörkum til íslenskrar knattspyrnu. Sem þjálfari kvennaliðs Vals varð Pétur margfaldur Íslandsmeistari og hefur jafnframt barist ötullega fyrir uppbyggingu og eflingu kvennafótboltans á Íslandi. Pétur nýtur mikillar virðingar fyrir þekkingu sína, metnað og framlag sitt til íslenskrar knattspyrnu, bæði innan vallar og utan.

Heimild: KSÍ