29.09.26 - 21:15
Brynjar Ingi Erluson
Þjóðadeildin: Yamal fór á kostum - England vann tíu leikmenn Tékklands

Lamine Yamal skoraði tvö og lagði upp eitt

Mynd: EPA

Anthony Gordon og Harry Kane skoruðu báðir

England og Spánn unnu sannfærandi sigra í A-deild Þjóðadeildarinnar í kvöld.
Englendingar unnu 2-0 sigur á Tékklandi í Prag.
Heimamenn fengu þungt högg á 25. mínútu þegar Pavel Sulc fékk rautt spjald fyrir grófa tæklingu á Elliot Anderson. Englendingum tókst þó ekki að nýta sér liðsmuninn fyrir hlé, en í síðari hálfleik kláruðu þeir dæmið.
Anthony Gordon skoraði annan landsleikinn í röð þegar Trent Alexander-Arnold átti stórkostlega fyrirgjöf frá hægri og Gordon skallaði boltann upp við stöng og í netið.
Tuttugu mínútum síðar bætti Harry Kane við öðru marki. Morgan Rogers var tekinn niður í teignum, boltinn barst á Kane sem var réttur maður á réttum stað og hamraði hann í netið.
Fyrsti sigur Englendinga í keppninni þar með kominn í hús og liðið er með þrjú stig eftir tvo leiki. Tékkar eru hins vegar stigalausir á botninum.
Heims- og Evrópumeistarar Spánar unnu þá sannfærandi 4-1 sigur á Króatíu í Sevilla.
Lamine Yamal skoraði tvö mörk og lagði upp eitt fyrir Marc Pubill. Nico Williams bætti síðan við fjórða markinu eftir að hafa komið inn á sem varamaður undir lok leiks. Spánverjar eru með fullt hús stiga.
Í B-deildinni unnu Svisslendingar öruggan 3-0 sigur á Skotum.
Skotar léku manni færri frá 11. mínútu eftir að Jack Hendry fékk rautt spjald fyrir brot á Dan Ndoye. Upphaflega var dæmd vítaspyrna, en hún var síðar tekin til baka þar sem brotið átti sér stað utan teigs. Rauða spjaldið stóð þó og Ricardo Rodriguez skoraði beint úr aukaspyrnunni.
Nico Elvedi og Zeki Amdouni bættu við mörkum í síðari hálfleik og Sviss er með fullt hús stiga í A-riðli B-deildarinnar. Skotar eru með eitt stig.
Slóvenía vann þá 2-0 sigur á Norður-Makedóníu í sama riðli og er í 2. sæti með fjögur stig.
Úrslit og markaskorarar:
A-deild:
Tékkland 0 - 2 England
0-1 Anthony Gordon ('47 )
0-2 Harry Kane ('69 )
Rautt spjald: Pavel Sulc, Czech Republic ('25)
Spánn 4 - 1 Króatía
1-0 Lamine Yamal ('2 )
1-1 Dion Beljo ('28 )
2-1 Marc Pubill ('31 )
3-1 Lamine Yamal ('63 )
4-1 Nico Williams ('89 )
B-deild:
Skotland 0 - 3 Sviss
0-1 Ricardo Rodriguez ('12 )
0-2 Nico Elvedi ('55 )
0-3 Zeki Amdouni ('82 )
Rautt spjald: Jack Hendry, Scotland ('11)
Slóvenía 2 - 0 Norður-Makedónía
1-0 Sandi Lovric ('55 )
2-0 Aljosa Matko ('82 )
C-deild:
Búlgaría 0 - 0 Eistland
San Marínó 0 - 3 Albanía
0-1 Anis Mehmeti ('21 )
0-2 Myrto Uzuni ('27 )
0-3 Rey Manaj ('65 )
Slóvakía 2 - 1 Kasakstan
1-0 Leo Sauer ('26 )
1-1 Ramazan Karimov ('35 )
2-1 David Hancko ('82 )