Fotbolti.net
29.09.26 - 16:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Útlit fyrir að Afturelding haldi tveimur stórum póstum

Bjartur Bjarmi Barkarson.

Bjartur Bjarmi Barkarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjartur Bjarmi Barkarson vakti mikla athygli í liði Aftureldingar í Lengjudeildinni í sumar og var valinn í lið ársins í deildinni hér á Fótbolta.net.

Hann er 24 ára miðjumaður sem var eftirsóttur síðasta vetur og reyndi Njarðvík að kaupa hann, en án árangurs. Hann var einnig orðaður við ÍA, FH og Þór.
Hjörvar Hafliðason orðaði hann þá við félög í Bestu deildinni í Dr. Football þætti á dögunum og eru Valur og Breiðablik sögð hafa augastað á honum núna.

Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net síðasta laugardag og var þar spurður út í Ólsarann á miðjunni.

„Hann er að bæta sig. Mér fannst hann betri í ár en í fyrra. Hann er að taka skref á hverju einasta ári," sagði Magnús Már.

„Við erum ótrúlega ánægðir með að hafa hann innan okkar raða. Honum líður mjög vel í Mosfellsbæ; búinn að búa í Mosfellsbæ frá því hann kom frá Ólafsvík, búinn að vinna í Mosfellsbæ og eignast kærustu úr Mosfellsbæ. Hann er okkar maður og frábær leikmaður. Ég held að hann geti tekið enn stærra skref með okkur næsta sumar," bætti þjálfarinn við og ekki útlit fyrir að Bjartur sé á förum.

Bjartur Bjarmi er samningsbundinn Aftureldingu út næsta tímabil. Hann spilaði í öllum leikjum liðsins í Lengjudeildinni og Mjólkurbikarnum þar sem Afturelding fór alla leið í úrslit.

Hvað með norska markahrókinn?
Annar leikmaður sem átti frábært sumar í Mosó var norski sóknarmaðurinn Joachim Holtan sem skoraði 16 mörk í Lengjudeildinni í sumar.

Hann er að verða samningslaus en Mosfellingar eru vongóðir um að halda honum.

„Ég er bjartsýnn á það," sagði Magnús Már spurður að því hvort Holtan verði áfram. „Honum leið ógeðslega vel hérna, bæði hann og konan hans eru ánægð á Íslandi. Ég reikna með að hann komi aftur og ég er mjög bjartsýnn á að það verði klárað."
Joacim Holtan.

Joacim Holtan.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Afturelding leikur í Bestu deildinni næsta sumar.

Afturelding leikur í Bestu deildinni næsta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útvarpsþátturinn - Maggi.net og martröð Man City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.