Fotbolti.net
29.09.26 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Verða Konate og Van Dijk sameinaðir á ný?

Ibrahima Konate og Virgil van Dijk.

Ibrahima Konate og Virgil van Dijk.

Canon

Mynd: EPA

Real Madrid er sagt fylgjast grannt með stöðu Virgil van Dijk hjá Liverpool og íhugar að reyna að fá hann á frjálsri sölu.

Samningur Van Dijk við Liverpool rennur út sumarið 2027 og samkvæmt spænska miðlinum Mundo Deportivo hefur enska félagið enn ekki lagt fram formlegt tilboð um framlengingu.
Van Dijk er orðinn 35 ára og því gæti Liverpool staðið frammi fyrir því að missa einn af mikilvægustu leikmönnum sínum.

Real Madrid er sagt hafa sérstakan áhuga á möguleikanum eftir að félagið fékk Ibrahima Konaté frá Liverpool á frjálsri sölu í sumar.

Konaté og Van Dijk léku saman í hjarta varnar Liverpool og gæti Madrid séð fyrir sér að sameina þá á ný.

Spænska stórveldið hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á að sækja þekkta leikmenn á frjálsri sölu og Van Dijk gæti fallið vel að þeirri stefnu.

Real Madrid getur byrjað að ræða formlega við Van Dijk í janúar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.