Afturelding 0 - 4 ÍA
0-1 Heiður Heimisdóttir ('9)
0-2 Heiður Heimisdóttir ('23)
0-3 Bergdís Fanney Einarsdóttir ('31)
0-4 Maren Leósdóttir ('73)
0-1 Heiður Heimisdóttir ('9)
0-2 Heiður Heimisdóttir ('23)
0-3 Bergdís Fanney Einarsdóttir ('31)
0-4 Maren Leósdóttir ('73)
Afturelding tók á móti ÍA á N1-vellinum við Varmá í lokaleik þriðju umferðar Faxaflóamótsins.
ÍA komst yfir snemma leiks og var komið þremur mörkum í hálfleik, en Heiður Heimisdóttir gerði tvö þeirra.
Heimamenn í Aftureldingu voru þó ekki mikið lakari en gestirnir, þar sem nýting heimamanna var skelfileg og átti Ásta Vigdís Guðlaugsdóttir góðan leik í marki Skagamanna.
Þetta er fyrsti sigur ÍA á Faxaflóamótinu, en Afturelding er með eitt stig eftir óvænt jafntefli gegn Breiðablik í fyrstu umferð.
Athugasemdir