Fotbolti.net
30.01.25 - 12:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tómas Orri yfirgefur Breiðablik

Í leik með Breiðabliki í Lengjubikarnum 2024.

Í leik með Breiðabliki í Lengjubikarnum 2024.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir/Stein Jøran Sanden

Breiðablik og Tómas Orri Róbertsson hafa komist að sameiginlegri ákvörðun um að veita Tómasi leyfi til að leita á önnur mið. Er hann því laus allra mála frá Íslandsmeisturunum.

Tómas Orri er tvítugur sóknarsinnaður miðjumaður sem uppalinn er hjá Breiðabliki og á að baki sjö leiki með meistaraflokki í Lengjubikarnum.

Síðustu tvö tímabil hefur hann leikið á láni í Lengjudeildinni.
Fyrra tímabilið lék hann með Grindavík, lék 24 leiki sumarið 2023 og skoraði eitt mark. Síðasta sumar var hann hjá Gróttu þar sem hann lék 21 leik og skoraði tvö mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.