Fotbolti.net
30.03.17 - 22:32
Hafliði Breiðfjörð

Tóti Dan: FH liðið er stórkostlegt

Auglýsing
Þórhallur Dan Jóhannsson.

Þórhallur Dan Jóhannsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta FH lið er bara frábært, þeir eru með frábæra leikmenn, spila ótrúlega skemmtilega og eru með besta þjálfarann á landinu í sínu liði,\" sagði Þórhallur Dan Jóhannsson þjálfari Gróttu eftir 1-3 tap gegn FH í Lengjubikarnum í kvöld.
„Það var gaman fyrir mína stráka að spreyta sig á móti þeim og sjá hver munurinn er á milli Gróttu og FH. Hann er töluverður en þeir lögðu mikið á sig og ég er ótrúlega stoltur af mínum drengjum í dag þó við höfum tapað 3-1,\" bætti hann við.

„Við vörðumst og þeir sóttu en það var gaman að skora eitt mark. Við vorum að leggja hjartað og lungun á bakvið þetta en FH liðið er stórkostlegt. Sérstaklega þegar þeir náðu að spila sinn bolta þá líta þeir afskaplega vel út. Þetta er liðið sem flest lið eiga að bera sig við, þeir eru Íslandsmeistarar og við þurfum væntanlega að reyna að fara í sömu gæði og þau. Þetta er vegferðin hjá okkur, við erum að byrja að stíga skrefin í áttina að þessu en það eru helvíti löng skref eftir.\"

Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.