30.04.17 - 21:31
Magnús Már Einarsson
Óli Jó: Erum ekki að leita að mönnum
Auglýsing

Óli á hliðarlínunni í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Óli á hliðarlínunni í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
„Ég er mjög ánægður. Það gekk illa að koma inn marki en þegar það kom þá létti aðeins yfir okkur,\" sagði Ólafur jóhannesson, þjálfari Vals, eftir 2-0 sigur á Víkingi Ólafsvík í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar í kvöld.
Valsarar fóru illa með fjölmörg færi áður en Dion Acoff braut ísinn á 65. mínútu.
„Sumir leikir eru þannig að þú færð fullt af færum en skorar ekki. Þú gætir jafnvel spilað annan dag án þess að skora. Sem betur fer duttu tvö inn og það var ánægjulegt.\"
Danski framherjinn Patrick Pedersen hefur verið orðaður við sitt gamla félag Val að undanförnu og þá hefur verið orðrómur um að Ólafur og félagar séu í leit að varnarmanni. Eiður Aron Sigurbjörnsson hefur verið nefndur til sögunnar þar. Ólafur reiknar ekki með frekari liðsstyrk áður en glugginn lokar 15. maí.

„Þetta er hópurinn sem við förum með í mótið. Ég get lofað því að þú færð fyrstur að vita af því ef það kemur maður en eins og staðan er núna þá erum við ekki að leita að mönnum,\" sagði Óli.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.